2.0. Styrkhæf verkefni
2.1. Hvað er styrkt? Sjóðurinn veitir eingöngu styrki vegna kostnaðar við þátttöku félagsfólks þeirra stéttarfélaga sem aðild eiga að sjóðnum í því fræðsluverkefni sem umsækjandi stendur fyrir.
2.2. Námskeið fyrir sjóðfélaga sem stuðla að aukinni starfsmenntun.
Mannauðssjóðurinn Hekla gerir samstarfssamninga við fræðsluaðila um langtíma og skammtímaverkefni þar sem aðilar að sjóðnum geta sótt fræðslu sem setrið býður upp á og greiðir Mannauðssjóðurinn skv. samningi milliliðalaust fyrir þátttöku.
2.3. Námskeið/ innanhúsfræðsla.
Sveitarfélög / vinnuveitendur geta sótt um styrk til að kosta fræðslu sem fram fer innan stofnana þeirra. Umsókn um slíka fræðslu þarf að berast áður en námskeið eru haldin. Sjóðsstjórn tekur ákvörðun hverju sinni um upphæð hverrar styrkumsóknar sem getur orðið allt að 30.000 á mann að hámarki en heildarstyrkupphæð getur aldrei orðið hærri en 1.200.000 kr. á hverja stofnun.
2.4. Þarfagreining, úttekt /ráðgjöf til sveitarfélaga og eða stofnana.
Sveitarfélög geta gert samning við Mannauðssjóðinn um ráðgjöf í ákveðinn tíma til þess að greina fræðsluþarfir og í kjölfarið gert fræðsluáætlun sem hentar. Slíkt verkefni aðstoðar sveitarfélög að koma á markvissara skipulagi í tengslum við endur- og símenntun starfsmanna sinna. Mannauðssjóður greiðir allt að 50% af kostnaði sinna sjóðsfélaga á móts við sveitarfélagið en þó aldrei hærri upphæð en 600.000 kr.
2.5. Rafrænt námsumhverfi / þróunarverkefni, tækni og nýsköpun.
Veittir eru styrkir til rafræns námsumhverfis sveitarfélaga og stofnana. Stjórn sjóðsins metur slíkar umsóknir hverju sinni. Aldrei er greitt meira en sem nemur kr. 6.000 pr. sjóðsfélaga og sýnt hefur verið fram á virkni áður en greiðsla er framkvæmd. Árleg heildarstyrkupphæð getur aldrei orðið hærri en 600.000 kr. á hverja stofnun. Gert er ráð fyrir áskrift í a.m.k. 6-12 mánuði.
2.6. Nám/námskeið erlendis.
Ef stofnun/sveitarfélag eða starfstöð á þess vegum óskar eftir að senda starfsmann/menn til að sækja nám/námskeið erlendis sem ekki stendur til boða innanlands, getur það sótt um styrk vegna námskeiðs og ferðakostnaðar . Styrkur getur orðið að hámarki 170.000 kr. fyrir einstakling en stofnun getur sótt um slíkan styrk fyrir sína starfsstöð einu sinni á hverjum 36 mánuðum að hámarki fjóra starfsmenn hverju sinni. Ef sambærilegt námskeið er í boði innanlands er ferðakostnaður undanskilinn heildarkostnaði og því ekki styrktur.
2.7. Náms- og kynnisferð.
Náms- og kynnisferð er styrkt til starfsmannahóps sveitarfélaga / stofnana sem skipuleggur tiltekna kynnisferð og skilar umsókn fyrirfram til mannauðssjóðsins og staðfestingu fræðslu- og móttökuaðila sem sér um námskeið og móttöku. Umsókninni skal fylgja ítarleg dagskrá sem spannar að lágmarki tvo vinnudaga með sex klukkustunda fræðsludagskrá hvern vinnudag að hámarki þrjár nætur. Skila þarf inn lista yfir þátttakendur.
Ekki eru veittir styrkir ef sambærilegt námskeið/ fræðslu er að finna innanlands og ekki fæst styrkur til að kosta íslenskan leiðbeinanda erlendis. Styrkur er greiddur fyrir samþykktar umsóknir eftir að ferð er yfirstaðin og kvittanir hafa borist. Styrkurinn getur mögulega náð yfir kostnað við ferðir á milli landa eða sveitarfélaga, gistingu og námskeiðsgjald. Umsóknir sem innihalda einungis skoðunarferðir en enga fræðslu eru ekki styrkhæfar. Hámark styrks á hvern einstakling er kr. 170.000 fyrir hvert fjögurra ára tímabil.
Við afgreiðslu er litið til eftirfarandi þátta:
- Hvort náms- og kynnisferðin samræmist endurmenntunaráætlun/ starfsþróunaráherslum sveitarfélags og /eða stofnunar.
- Hvort fræðsla/námskeið tengist starfsemi viðkomandi stofnunar og nýtist starfseminni og starfsfólki til framþróunar í starfi.
- Hvort dagskrá og umfang fræðslu sé í samræmi við úthlutunarreglur sjóðsins.
- Hvort öll fylgiskjöl og staðfesting móttökuaðila hafi borist.
- Hvort umsókn sé vönduð og vel útfyllt, sjá kafla 5 í reglum
þessum. Heimilt er að endursenda umsókn ef hún er ekki nógu vel rökstudd og ef fylgiskjölum er ábótavant.
