Sveitarfélag ársins

Könnun í umsjón Mannauðssjóðsins Heklu. Samstarfsverkefni bæjarstarfsmannafélaga sem eru stéttarfélög innan BSRB.

Eftir Hrund Hlöðversdóttir 3. nóvember 2025
Sveitarstjórar taka á móti verðlaunum, Sveitarfélag ársins 2025
Eftir Hrund Hlöðversdóttir 29. október 2025
Beint streymi hér fyrir neðan

Markmið verkefnisins er að styrkja starfsumhverfi sveitarfélaganna með því að draga upp heildarmynd af starfsumhverfi og starfsánægju félagsmanna.

Sveitarfélag ársins 2025

Beint streymi

Þáttagreining og heildareinkunn

Könnunin veitir mikilvægar upplýsingar um starfsumhverfi og stjórnun. Mælingin nær yfir fjölbreytta þætti en þannig fæst heilsteypt mynd af innra starfsumhverfi sveitarfélaganna.

Þáttagreining (factor analysis) er notuð til að greina þá undirliggjandi þætti sem eru mældir. Heildareinkunnin er vegið meðaltal úr þáttunum sem greindir eru og er hún grunnur útnefningar á Sveitarfélagi ársins.


Sveitarfélög á lista

Samkvæmt þátttökuskilyrðum könnunarinnar þarf svarhlutfall að vera að lágmarki 35% af útsendum spurningalistum til að sveitarfélag nái inn á stigalista, auk þess sem tíu svör þurfa að lágmarki að berast frá félagsmönnum sem eru starfandi í sveitarfélaginu. 

Könnunin nær til félagsmanna áðurnefndra tíu bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB sem eru í 30% starfi eða meira og hafa verið félagsmenn í a.m.k. þrjá mánuði. Félögin starfa um allt land, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni.


Verðlaun og viðurkenning

Árlega eru veitt verðlaun og viðurkenning fyrir sveitarfélögin sem verma fjögur efstu sætin og fá þau sæmdarheitið Sveitarfélag ársins.


Verðlaunagripur

Verðlaunagripurinn er hannaður og smíðaður af Sigrúnu Björgu Aradóttur hjá Agndofa hönnunarhúsi.