Uppskeruhátíð - Sveitarfélag ársins 2026

Hrund Hlöðversdóttir • 8. október 2026

Uppskeruhátíð Sveitarfélags ársins 2026 - Hótel Selfoss

15. október kl. 14:00-15:00


Verið öll velkomin að mæta eða horfa á í streymi á heimasíðu Mannauðssjóðs Heklu.



Fimmta árið í röð útnefnum við „Sveitarfélag ársins“ á grundvelli undangenginnar könnunar. Svarendum fjölgar ár frá ári og hafa aldrei verið fleiri en nú. 


Tilgangurinn með könnuninni er að hvetja stjórnendur sveitarfélaganna til að veita starfsumhverfinu meiri athygli, sem og að ráðast í umbótaverkefni þar sem þess er þörf. Einnig er ætlunin að niðurstöðurnar skapi almenna umræðu um starfsumhverfi og stjórnun á vinnustöðum, félagsfólki stéttarfélaganna til hagsbóta. Þá er tilgangurinn ekki síst að veita góðum vinnustöðum viðurkenningu fyrir að hlúa vel að starfsfólki. Könnunin veitir mikilvægar upplýsingar um starfsumhverfi og stjórnun. Mælingin nær yfir fjölbreytta þætti en þannig fæst heilsteypt mynd af innra starfsumhverfi sveitarfélaganna.


Mannauðssetrið Hekla hefur meðal annars það hlutverk að rýna í gögnin og bregðast við ef mögulegt er. Eitt af því sem nú þegar hefur verið gert er að benda á þá staðreynd að allt of fáir eða undir 50% starfsfólks er boðið í starfsmannasamtal af yfirmanni. Mannauðssetrið hefur brugðist við þessu með því að bjóða upp á námskeið félagsfólki að kostnaðarlausu. Eins er verið að vinna að stafrænum námskeiðum á sviði uppeldismála og í málaflokki fatlaðra sem svar við beiðni um meira framboð af aðgengilegu starfsþróunarnámsefni.


Sveitarfélögum er boðið að taka þátt í könnuninni Sveitarfélag ársins fyrir hönd alls starfsfólks og það er gleðilegt að sú þátttaka hefur aukist ár frá ári. Í ár tóku ellefu sveitarfélög þátt fyrir utan alla félagsmenn bæjarstarfsmannafélaganna. Könnunin er ein af stærri vinnumarkaðskönnunum sem framkvæmd er hér á landi og vonast er til  að sífellt fleiri sveitarfélög bætist á vagninn á næstu árum og taki þátt fyrir allt sitt starfsfólk. 


Uppskeruhátíðin 15. októberber kl. 14:00-15:00  - sjá frétt

 

Dagskrá:

14:00 – Hrund Hlöðversdóttir framkvæmdastjóri Mannauðssjóðsins Heklu opnar hátíðina og býður fólk velkomið.

14:03 – Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Árnesinga.

14:10 – Tómas Bjarnason sviðsstjóri stjórnenda- og vinnustaðaráðgjafar Gallup kynnir helstu niðurstöður könnunarinnar um Sveitarfélag ársins 2026.

14:30 – Guðrún Rakel Eiríksdóttir, klínískur sálfræðingur og doktorsnemi við Háskólann í Reykjavík flytur erindið: Andleg líðan í vinnu – hvað geta vinnustaðir gert? Þar fjallar hún um álag, stuðning og aðstæður sem skipta máli í því samhengi. Í erindinu talar hún m.a. út frá niðurstöðum könnunarinnar.

14:50 - Verðlaun afhend þeim fjórum sveitarfélögum sem verma efstu sæti. Árný Erla Bjarnadóttir formaður FOSS stéttarfélags í almannaþjónustu og Hrund sjá um að veita verðlaunin.

15:00 –hátíðinni lýkur formlega.


Eftir Hrund Hlöðversdóttir • 24. september 2026
Er komið að starfsþróun / endurmenntun þíns starfsmannahóps? Kynntu þér nýjar úthlutunarreglur Mannauðssjóðsins Heklu sjá hér
50% starfsmanna sveitarfélaganna fá ekki formlegt samtal við sinn yfirmann
Eftir Hrund Hlöðversdóttir • 15. september 2026
Niðurstöður könnunarinnar um Sveitarfélag ársins 2026
Sveitarfélag ársins 2026
Eftir Hrund Hlöðversdóttir • 8. apríl 2026
Könnunin Sveitarfélag ársins er á vegum Mannauðssjóðsins Heklu og framkvæmd af Gallup.
Eftir Hrund Hlöðversdóttir • 19. febrúar 2026
Hér má finna fréttabréf Mannauðssjóðs Heklu
Eftir Hrund Hlöðversdóttir • 19. desember 2025
Fréttir í desember
Eftir Hrund Hlöðversdóttir • 27. nóvember 2025
Góðar umræður og vörður fyrir næstu skref Mannauðssjóðs Heklu
Eftir Hrund Hlöðversdóttir • 7. nóvember 2025
Nýr samstarfssamningur Heklunnar við Fræðslusetur Starfsmennt