Grundarfjarðarbæ veitt viðurkenning
Grundarfjarðarbær fær viðurkenningu fyrir góðan árangur í Sveitarfélagi ársins 2026
Grundarfjarðarbær hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í könnuninni, Sveitarfélag ársins 2026 og raðaðist í 3. sæti yfir blómlegustu sveitarfélög landsins. Könnunin sem nú var framkvæmd í fimmta sinn, er ætlað að varpa ljósi á starfsumhverfi og stjórnun á vinnustöðum sveitarfélaga, hvetja til umbóta og veita þeim viðurkenningu sem standa sig vel í að hlúa að starfsfólki sínu.
Þar sem fulltrúi Grundarfjarðarbæjar komst ekki á uppskeruhátíð verkefnisins, 15. október, afhenti fulltrúi Mannauðsseturs og sjóðs Heklu, Þóra Sonja Helgadóttir, bæjarstjóranum, Birki Jóni Jónssyni og starfsfólki Grundarfjarðarbæjar verðlaunin á heimavelli þeirra í Grundarfirði. Mannauðssetur og sjóður Heklu færir þeim innilegar hamingjuóskir með þennan góða árangur.

Þóra Sonja Helgadóttir, verkefnastjóri hjá Kili stéttarfélagi, Birkir Jón Jónsson, bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar, Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Sigurður Gísli Guðjónsson, skólastjóri grunnskólans, Pálmi Jóhannsson, forstöðumaður menningar og markaðsmála, Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnastjóri skipulags- og umhverfismála, Guðmundur Rúnar Svansson, þjónustufulltrúi skipulags- og byggingarmála, Heiðdís Lind Kristinsdóttir, leikskólastjóri, Sigurlaug R. Sævarsdóttir, skrifstofustjóri, Helga Sjöfn Ólafsdóttir, þjónustufulltrúi, Sigríður Gísladóttir, launa- og innheimtufulltrúi, Guðrún Margrét Hjaltadóttir, aðalbókari, Olga Sædís Aðalsteinsdóttir, starfsmaður bókasafns og Örvar Þór Örlygsson, verkefnastjóri tæknimála og framkvæmda.
Fjögur sveitarfélög hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í könnuninni Sveitarfélag ársins 2026. Þau eru:
- Hrunamannahreppur
- Grímsnes- og Grafningshreppur
- Grundarfjarðarbær
- Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Frekari upplýsingar um verkefnið Sveitarfélag ársins og myndir frá uppskeruhátíðinni 2026 er að finna á heimasíðu verkefnisins sveitarfelagarsins.is







