Sveitarfélag ársins 2026 niðurstöður
Sveitarfélag ársins 2026
Niðurstöður viðhorfskönnunarinnar Sveitarfélag ársins 2026 voru kynntar á uppskeruhátíð verkefnisins 15. október. Þar voru blómlegum sveitarfélögum sem vermdu efstu fjögur sætin í starfsánægju og góðu starfsumhverfi, veittar viðurkenningar fyrir þeirra góðu störf.
Könnunin, sem nú var framkvæmd í fimmta sinn, sýnir að starfsfólk sveitarfélaga er almennt ánægt með starfsumhverfi sitt og að ánægja með launakjör, sveigjanleika og jafnrétti hefur aukist undanfarin fimm ár.
Fjögur sveitarfélög hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í könnuninni. Þau eru:
- Hrunamannahreppur
- Grímsnes- og Grafningshreppur
- Grundarfjarðarbær
- Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Sveitarfélögin á Suðurlandi sem hlutu viðurkenningu hafa verið á meðal þeirra efstu í könnuninni undanfarin ár. Hrunamannahreppur hefur áður verið í hópi efstu sveitarfélaga og Grímsnes- og Grafningshreppur hlaut fyrsta sætið þegar könnunin var fyrst framkvæmd árið 2022.
Mynd: Fjóla St. Kristinsdóttir, sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps, Aldís Hafsteinsdóttir, sveitarstjóri Hrunamannahrepps og Sylvía Karen Heimisdóttir, sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Á myndina vantar fulltrúa Grundarfjarðarbæjar sem sá sér ekki fært um að mæta.
Ánægja með starfsumhverfið hefur aukist
Könnunin Sveitarfélag ársins hefur verið framkvæmd árlega frá árinu 2022 og er ein af stærri vinnumarkaðskönnunum hér á landi. Henni er ætlað að varpa ljósi á starfsumhverfi og stjórnun á vinnustöðum sveitarfélaga, hvetja til umbóta og veita þeim vinnustöðum viðurkenningu sem standa sig vel í að hlúa að starfsfólki sínu.
Niðurstöður ársins sýna að starfsfólk sveitarfélaga er almennt ánægt í störfum sínum. Þá hefur ánægja með launakjör, sveigjanleika og jafnrétti aukist á þeim fimm árum sem könnunin hefur verið framkvæmd.
Nokkur munur kemur þó fram á upplifun starfsfólks eftir kyni, störfum og starfssviðum. Karlar eru almennt ánægðari en konur með starfsumhverfi og stjórnun og stjórnendur ánægðastir þegar niðurstöður eru skoðaðar eftir starfsstéttum.
Lægstu einkunnirnar koma frá starfsfólki í framreiðslustörfum, meðal annars matráðum og aðstoðarfólki í eldhúsum. Þegar niðurstöður eru skoðaðar eftir starfsemi sveitarfélaga gefur starfsfólk stjórnsýslu hæstu einkunnir fyrir alla þætti könnunarinnar en starfsfólk í félags- og velferðarþjónustu þær lægstu.
Niðurstöðurnar sýna því að þótt starfsánægja sé almennt mikil er áfram mikilvægt að huga að ólíkum starfsaðstæðum og tækifærum starfsfólks til umbóta.
Sí- og endurmenntun verður sífellt mikilvægari
Á uppskeruhátíðinni kynnti Tómas Bjarnason, sviðsstjóri stjórnenda- og vinnustaðaráðgjafar Gallup, helstu niðurstöður könnunarinnar. Þar var meðal annars fjallað um mikilvægi fræðslu og sí- og endurmenntunar í ljósi breytinga á vinnumarkaði.
Nærri helmingur svarenda segist fá mikla hvatningu frá stjórnendum sínum til að sækja fræðslu og sí- og endurmenntun. Hlutfallið hefur aukist jafnt og þétt frá árinu 2022. Þá sýna niðurstöðurnar að starfsmannasjóðir gegna mikilvægu hlutverki við að hvetja starfsfólk til að sækja sér aukna menntun og fræðslu.

Tómas benti á að mörg störf væru að taka miklum breytingum vegna tækniframfara, meðal annars með tilkomu gervigreindar. Því væri mikilvægara en nokkru sinni fyrr að starfsfólk hefði tækifæri til að efla þekkingu sína og færni til að takast á við breyttar starfskröfur.
Niðurstöðurnar sýna að háskólamenntað starfsfólk sækir frekar sí- og endurmenntun en þau sem ekki hafa háskólamenntun. Því sé sérstaklega mikilvægt að stjórnendur hvetji allt starfsfólk til þátttöku í fræðslu, óháð menntun og störfum.
Árið 2026 var þemað í könnuninni andleg líðan og streita en árlega er ákveðið að beina sjónum að ákveðnu þema ásamt grunnspurningum varðandi starfsumhverfi. 45,4% svarenda finna frekar oft eða mjög oft fyrir streitu í starfi og einungis 26% svarenenda segjast sjaldan eða aldrei finna fyrir streitu. Áhugavert væri að kafa dýpra ofan í það hverjir streituvaldarnir eru í starfi þessa fólks og hvað er til ráða.

Mikilvægt tæki til að bæta starfsumhverfið
Könnunin Sveitarfélag ársins er samstarfsverkefni 11 bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB og Gallup. Þessi ellefu félög eru Starfsmannafélag Mosfellsbæjar, Starfsmannafélag Vestmannaeyja, Starfsmannafélag Garðabæjar, Starfsmannafélag Suðurnesja, Starfsmannafélag Kópavogs, Starfsmannafélag Hafnarfjarðar, Starfsmannafélag Húsavíkur, Kjölur, FOSS, FOSA og Sameyki utan Reykjavíkur.
Könnunin var lögð fyrir um 10.000 félagsfólk sem aðild á að stéttarfélögunum. Á hverju ári er sveitarfélögum einnig boðið að taka þátt fyrir allt sitt starfsfólk og þáðu ellefu sveitarfélög það boð þetta árið. Við hvetjum sveitarfélög að nýta sér þessa greinargóðu könnun til innra mats á starfsumhverfi síns fólks og taka þátt á næsta ári þegar þau fá boð um það frá Mannauðssetri og sjóði Heklu.
Með könnuninni fá sveitarfélögin mikilvægar upplýsingar um stöðu starfsumhverfis og stjórnunar á sínum vinnustöðum og tækifæri til að bera niðurstöðurnar saman við önnur sveitarfélög. Sjá einnig frétt/ fjölpóst









